Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, dagana 5.-6. maí 2024
Tímasetning:
Sunnudagur 5. maí og mánudagur 6. maí 2024, kl. 10:00-16:00, báða daga. Samtals 12 klukkustundir. Námskeiðið fer fram á ensku.
Námskeiðsgjald án hunds: 22.000 kr.
Námskeiðsgjald með hundi: 45.000 kr. SKRÁNING HÉR.
Staðsetning: Reykjadalur í Mosfellsbæ
Námskeiðslýsing
Megináhersla verður lögð á verklega þjálfun hunda í æfingum sem nýtast í starfi með fólki innan heilbrigðis-, menntunar- og félagsþjónustu. Auk þess verða fræðslufyrirlestrar um leiðir til að tryggja velferð hunda og ábyrgð stjórnanda hunds.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
-
Þjálfun hunda í æfingum er nýtast í starfi með fólki
-
Viðurkenndar leiðir við þjálfun hunda sem ætlaðir eru í slíkt starf
-
Velferð hunda og ábyrgð stjórnenda hunds í starfi með fólki
Fyrir hvern er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfa innan heilbrigðis-, félags- og menntunarþjónustu og hefur áhuga á að styðjast við hunda í starfi sínu. Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði eru 18 teymi eigenda og hunda. Einnig er boðið upp á nokkur pláss fyrir áhorfendur án hunds.
Hvorki er gerð krafa um þekkingu og færni hunds né eiganda fyrir þátttöku á námskeiði.
Umsjón
- Line Sandstedt, deildastjóri kennslu ICofA, hundaþjálfari, skapgerðarmatsdómari og sérkennari.
- Gunnhildur Jakobsdóttir, iðjuþjálfi og formaður Hjálparhunda Íslands. Er ásamt hundi sínum vottað teymi frá ICofA.
- Magda Nawarecka-Piątek meðhöfundur og verkefnastjóri í alþjóðlegum verkefnum innan AAI eins og "Human Dog Teams" og "Personality Assessment for Dogs and Cats in AAI (PADA).
- Mari-Louise Asp er barnaverndarstarfsmaður og AAI leiðbeinandi. Hún starfar hjá Dyrebar Omsorg sem leiðbeinandi og PADA matsmaður.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar
Námskeiðsgjald er 45.000 kr. Ekki er boðið upp á mat en kaffi og te er innifalið í námskeiðsgjaldi.
Námskeiðsgjald sem áhorfandi (án hunds) eru 22.000 kr.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á gunnhildur@slf.is. Æfingastöðin áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.
Námskeiðið er fast í formi og gefst ekki tækifæri á einstaklingsþjálfun og/eða ráðgjöf. Hins vegar geta áhugasamir haft samband við Line Sandstedt (line@dyrebaromsorg.no) og bókað einkatíma að loknu námskeiði.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Æfingastöðvarinnar, í netfang: gunnhildur@slf.is