Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024
Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024

Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, 5.-6. maí 2024

Verð 45.000 kr

Verklegt námskeið: Íhlutun með aðstoð hunds, dagana 5.-6. maí 2024

Tímasetning: 

Sunnudagur 5. maí og mánudagur 6. maí 2024, kl. 10:00-16:00, báða daga. Samtals 12 klukkustundir. Námskeiðið fer fram á ensku. 

Námskeiðsgjald er 45.000 kr.  

Staðsetning: Reykjadalur í Mosfellsbæ  

 

Námskeiðslýsing 

Megináhersla verður lögð á verklega þjálfun hunda í æfingum sem nýtast í starfi með fólki innan heilbrigðis-, menntunar- og félagsþjónustu. Line Sandsted mun hafa yfirumsjón með þjálfun teyma en auk hennar verða fleiri erlendir þjálfarar með reynslu. Þá verður einnig fræðsla um leiðir til að tryggja velferð hunda og ábyrgð stjórnanda hunds. 

Á námskeiðinu verður farið yfir: 

  • Þjálfun hunda í æfingum er nýtast í starfi með fólki 
  • Viðurkenndar leiðir við þjálfun hunda sem ætlaðir eru í slíkt starf 
  • Velferð hunda og ábyrgð stjórnenda hunds í starfi með fólki 

 

Fyrir hvern er námskeiðið? 
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfa innan heilbrigðis-, félags- og menntunarþjónustu og hefur áhuga á að styðjast við hunda í starfi sínu. Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði eru 18 teymi eigenda og hunda. Einnig er boðið upp á nokkur pláss fyrir áhorfendur án hunds. 

Hvorki er gerð krafa um þekkingu og færni hunds né eiganda fyrir þátttöku á námskeiði.  

Umsjón 

  • Line Sandstedt, deildastjóri kennslu ICofA, hundaþjálfari, skapgerðarmatsdómari og sérkennari.  
  • Gunnhildur Jakobsdóttir, iðjuþjálfi og formaður Hjálparhunda Íslands. Er ásamt hundi sínum vottað teymi frá ICofA. 
  • Magda Nawarecka-Piątek meðhöfundur og verkefnastjóri í alþjóðlegum verkefnum innan AAI eins og "Human Dog Teams" og "Personality Assessment for Dogs and Cats in AAI (PADA). 
  • Mari-Louise Asp er barnaverndarstarfsmaður og AAI leiðbeinandi. Hún starfar hjá Dyrebar Omsorg sem leiðbeinandi og PADA matsmaður.

 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar 

Námskeiðsgjald er 45.000 kr. Ekki er boðið upp á mat en kaffi og te er innifalið í námskeiðsgjaldi. 

Námskeiðsgjald sem áhorfandi (án hunds) eru 22.000 kr. SKRÁNING HÉR.


Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á gunnhildur@slf.is. Æfingastöðin áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið. 

   

Námskeiðið er fast í formi og gefst ekki tækifæri á einstaklingsþjálfun og/eða ráðgjöf. Hins vegar geta áhugasamir haft samband við Line Sandstedt (line@dyrebaromsorg.no) og bókað einkatíma að loknu námskeiði. 

Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Æfingastöðvarinnar, í netfang: gunnhildur@slf.is