Þinn stuðningur er okkar styrkur! Við eflum börn til þátttöku í samfélaginu og leggjum áherslu á vináttu og gleði í öllu okkar starfi.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra treystir á ýmsar fjáraflanir til að fjármagna starfsemi sína. Með því að greiða þennan happdrættismiða styður þú við mikilvæga starfsemi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og gætir átt von á glæsilegum vinningi.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnð árið 1952 og hefur frá upphafi rutt braut og unnið dýrmætt frumkvöðlastarf í þjónustu við fötluð börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Í dag er blómleg starfsemi á vegum félagsins einkum fólgin í margvíslegri þjónustu undir merkjum Æfingastöðvarinnar og Reykjadals í Mosfellsdal og Skagafirði. Alls nýta um 1.800 fjölskyldur þjónustu Styrktarfélagsins á ári hverju.
Sumarhappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
Heildarverðmæti vinninga er 40.090.000,- kr. Dregið 17. júní 2024
1. vinningur
ORA 300 PRO, 100% rafmagnaður, að verðmæti kr. 5.890.000 kr,- *Búnaður bílsins á myndinni getur verið frábrugðinn búnaði vinningsbílsins
2.– 4. vinningur.
Gjafabréf frá Heimsferðum að verðmæti 1.000.000,- kr. hver
vinningur.
5.-10. vinningur
Gjafabréf frá Heimsferðum að verðmæti 700.000,- kr. hver vinningur.
11.-100. vinningur
Gjafabréf frá Heimsferðum að verðmæti 300.000,- kr. hver vinningur.
Útgefnir miðar eru 61.000. Söluverð hvers miða er kr. 3.900. Vinningar eru 100 að heildarverðmæti kr. 40.090.000. Vinningar eru auglýstir í Lögbirtingablaðinu og fjölmiðlum að loknum drætti. Upplýsingar um vinninga eru á heimasíðu félagsins www.slf.is og á skrifstofu félagsins í síma 535-0900. Gildistími vinninga er eitt ár frá því að útdráttur fer fram. Öllum hagnaði af happdrættinu er varið til eflingar starfsemi félagsins. Vinningar eru skattfrjálsir.