Skyrgámur eftir Steinunni Sigurðardóttur og kvæði eftir Sigurð Pálsson.
SKYRGÁMUR
Hvítt allt er hvítt
Alhvít jörð
hungrið alhvítt
Ég og bræður mínir
og foreldrarnir furðulegu
öll jafn svöng á leið til byggða
Dreymir um alls konar mat
Mig dreymir bara um skyr
alltaf bara skyr skyr skyr
Hvítt allt er hvítt
Ég geng svangur
áfram og áfram
Hugsa ekki um neitt
nema hvítt og meira hvítt skyr
Alhvít jörð
hungrið alhvítt
Vil ekki þennan snjó
vil ekki þetta hungur
vil bara skyr
Dýrð og dásemd!
Ég er kominn
að fremsta bænum í dalnum
Finn hvernig munnvatnið seytlar
Beint í skyrið beint í skyrið!
Skyr skyr skyr!
Hvítt allt er hvítt
Dýrð og dásemd!
ég er saddur
Veröldin er skyr
ég er Skyrgámur
allt til enda veraldarinnar
Sigurður Pálsson