Gerðu eins og ég - Hvati og dýrin
Gerðu eins og ég - Hvati og dýrin

Gerðu eins og ég - Hvati og dýrin

Verð 2.500 kr
Hvati er góður hvolpur þótt forvitnin komi honum stundum í klandur. Hann kann alls konar hundakúnstir - veltir sér, teygir sig, beygir og hneigir. Þegar hann fer í dýragarðinn með Ásu finnst honum dýrin heldur löt og sýnir þeim kátur hvernig þau eigi að haga sér. Þó að æfingarnar gangi ekki alltaf vel veit Hvati að það borgar sig að gefast ekki upp. Æfingin skapar meistarann! 

Bókin um Hvata er hugsuð sem skemmtileg lesning fyrir börn en jafnframt tæki fyrir foreldra og þá sem vinna með börnum til að ýta undir markvissa hreyfingu, þroska og tengslamyndun. Hreyfing er mikilvæg á öllum æviskeiðum og stuðlar að betri heilsu og aukinni vellíðan. 

Eva Þengilsdóttir þróaði efnið um Hvata hvolp í samstarfi við Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti.