Sumarhappdrættismiði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2024
Sumarhappdrættismiði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2024
Sumarhappdrættismiði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2024
Sumarhappdrættismiði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2024
Sumarhappdrættismiði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2024

Sumarhappdrættismiði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2024

Verð 3.900 kr

Þinn stuðningur er okkar styrkur! Við eflum börn til þátttöku í samfélaginu og leggjum áherslu á vináttu og gleði í öllu okkar starfi. 

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra treystir á ýmsar fjáraflanir til að fjármagna starfsemi sína. Með því að greiða þennan happdrættismiða styður þú við mikilvæga starfsemi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og gætir átt von á glæsilegum vinningi.  

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnð árið 1952 og hefur frá upphafi rutt braut og unnið dýrmætt frumkvöðlastarf í þjónustu við fötluð börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Í dag er blómleg starfsemi á vegum félagsins einkum fólgin í margvíslegri þjónustu undir merkjum Æfingastöðvar­innar og Reykjadals í Mosfellsdal og Skagafirði. Alls nýta um 1.800 fjölskyldur þjónustu Styrktarfélagsins á ári hverju. 

Sumarhappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra  

Heildarverðmæti vinninga er 40.090.000,- kr. Dregið 17. júní 2024

1. vinningur

ORA 300 PRO, 100% rafmagnaður, að verðmæti kr. 5.890.000 kr,-  *Búnaður bílsins á myndinni getur verið frábrugðinn búnaði vinningsbílsins 

2.– 4. vinningur.  

Gjafabréf frá Heimsferðum að verðmæti 1.000.000,- kr. hver 

vinningur.                                                                                                      

5.-10. vinningur 

Gjafabréf frá Heimsferðum að verðmæti 700.000,- kr. hver vinningur.      

11.-100. vinningur 

Gjafabréf frá Heimsferðum að verðmæti 300.000,- kr. hver vinningur.                                                                                                                                                                                 

Útgefnir miðar eru 61.000. Söluverð hvers miða er kr. 3.900. Vinningar eru 100 að heildarverðmæti kr. 40.090.000. Vinningar eru auglýstir í Lögbirtingablaðinu og fjölmiðlum að loknum drætti. Upplýsingar um vinninga eru á heimasíðu félagsins www.slf.is og á skrifstofu félagsins í síma 535-0900. Gildistími vinninga er eitt ár frá því að útdráttur fer fram. Öllum hagnaði af happdrættinu er varið til eflingar starfsemi félagsins. Vinningar eru skattfrjálsir.