Ráðstefna Æfingastöðvarinnar: Dýr í starfi með fólki verður haldin í Reykjadal í Mosfellsbæ laugardaginn 14. september 2024. Ráðstefnan er haldin af Æfingastöðinni sem er helsta endurhæfingastofnun landsins fyrir börn og er hlutverk hennar að efla börn og ungmenni til almennrar þátttöku með það að marki að bæta lífsgæði þeirra. Á Æfingastöðinni starfa teymi sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa og hefur í yfir18 ár verið starfrækt íhlutun þar með aðstoð dýra.
Þjónusta með aðstoð dýra hefur á síðastliðnum áratugum fest sig í sessi víða um heim enda hafa rannsóknir sýnt fram á gagnsemi hennar. Margar starfstéttir nýta sér þess nálgun og má þar helst nefna iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, kennara, talmeinafræðinga, tannlækna, þroskaþjálfa hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa. Þá hafa sjálfboðaliðar einnig unnið mikilvægt starf við að rjúfa félagslegs einangrun með aðstoð dýra með heimsóknum til einstaklinga og stofnana. Nærvera dýrsins og þátttaka hefur sýnt hafa jákvæð áhrif á líðan og þátttöku. Um er að ræða eins dags ráðstefnu með fjölbreyttum og áhugaverðum erindum þar sem fagfólk mun koma og segja frá hvernig hægt er að styðjast við hunda, hesta og ketti til að bæta líðan og árangur meðferðar.
Ráðstefnan er ætluð þeim sem vilja fræðast um kosti þess að styðjast við dýr í starfi. Hér er um að ræða einstakt tækifæri fyrir áhugasama til að koma saman og kynnast betur þessari gerð nálgunar og koma á tengslum við fólk sem starfa með dýrum í starfi sínu eða sem sjálfboðaliðar.
*Dagskrá verður birt fljótlega.
Það er okkur mikil ánægja að fá að taka á móti þremur erlendum gestafyrirlesurum í ár. Það eru þær Eva Bertilsson, Line Sandstedt og Norunn Kogstad.
Eva Bertilsson starfar á alþjóðavettvangi sem sérfræðingur og leiðbeinandi og hefur hlotið mikla eftirtekt og viðurkenningu á sínu sviði. Hún er með meistaragráðu í atferlisgreiningu og hefur lengi starfað í verkefnum tengdum hegðun og þjálfun dýra. Eva er meðhöfundur hinnar virtu bókar 'Agility Right from the Start'. Sérfræðiþekking Evu nær yfir víðtækt svið dýraþjálfunar og mun erindi hennar byggja á þekktu námskeiði hennar CCC -Choice, Control and Communication.
Line Sandstedt starfar hjá International Center for Anthrozoology (IcofA) sem hefur verið leiðandi m.a. í kennslu, þjálfun skipulagðrar íhlutunar með aðstoð dýra í Noregi og víðar. Auk þess sinnir ICofA kennslu og þjálfun, skapgerðarmats og úttekt á dýrum sem ætluð eru til að starfa með fólki. Line hefur leitt regluleg námskeið á vegum Æfingastöðvarinnar, Íhlutun með aðstoð hunds.
Norunn Kogstad, geðlæknir, stofnaði og rekur Lundehagen Gård í Noregi þar sem fram fer fræðsla, meðferðir og rannsóknir á áhrifum hesta í starfi með fólki. Norunn hefur sinnt geðlækningum með aðstoð hesta, staðið fyrir og veitt fræðslu fyrir fagfólk um að styðjast við hesta í starfi við bæði á Noregi og víða erlendis. Norunn er H.E.A.L. leiðbeinandi og með EAGALA réttindi. Norunn mun einnig leiða grunnnámskeiðið Að styðjast við hesta í starfi með fólki í kjölfar ráðstefnunnar. Skráning er hafin hér.
Dagsetning: Laugardagur 14. september 2024
Staðsetning: Reykjadalur í Mosfellsdal. Sjá nánar staðsetningu Reykjadals.
Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar:
Ráðstefnugjald er 36.000 kr. Innifalið í ráðstefnugjaldi er hádegisverður og kaffiveitingar yfir daginn.
Von er á góðri þátttöku og því er mikilvægt að tryggja sér sæti sem fyrst! Skráningarfrestur er 31. ágúst 2024. Skráning er ekki gild nema gengið sé frá greiðslu.
Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á slf@slf.is. Æfingastöðin áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu er lokið.
Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Æfingastöðvarinnar, í netfang: gunnhildur@slf.is