Námskeið fyrir sjúkraþjálfara: Ósamhverfa í hálshreyfingum og skekkja á höfuðkúpu hjá ungbörnum -skoðun-mat-meðferð.

Verð 22.000 kr

Námskeið fyrir sjúkraþjálfara: Ósamhverfa í hálshreyfingum og skekkja á höfuðkúpu hjá ungbörnum -skoðun-mat-meðferð. 

Tímasetning: Fimmtudagur 2. maí 2024, kl.13:30-16:30 

Námskeiðsgjald: 22.000 kr.

Staðsetning: Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13 

Námskeiðslýsing 

Á námskeiðinu verður farið yfir orsakir ósamhverfu, klínískar leiðbeiningar, fyrirbyggjandi aðgerðir, skoðun, mat og meðferð.  

Námskeiðið skiptist í fræðilegan hluta (ca. 2 klst.) og verklegan hluta (1 klst.).  

Umsjón  

Guðrún Ágústa Brandsdóttir sjúkraþjálfari, Rósa Guðsteinsdóttir sjúkraþjálfari og Kolbrún Kristínardóttir sjúkraþjálfari sjá um kennslu í fræðilega hluta námskeiðsins.  

Í verklegum hluta verða einnig Jóna Guðný Arthúrsdóttir sjúkraþjálfari og Guðbjörg Eggertsdóttir sjúkraþjálfari.  

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar 

Námskeiðgjald er 22.000 kr. 

Endurgreiðsla fæst einungis ef tekst að fylla í plássið af biðlista.  

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Kristínardóttir yfirsjúkraþjálfari Æfingastöðvarinnar í netfang: kolla@slf.is