Grunnnámskeið: Íhlutun með aðstoð hunds (sem áhorfandi án hunds)
Grunnnámskeið: Íhlutun með aðstoð hunds (sem áhorfandi án hunds)
Grunnnámskeið: Íhlutun með aðstoð hunds (sem áhorfandi án hunds)

Grunnnámskeið: Íhlutun með aðstoð hunds (sem áhorfandi án hunds)

Verð 16.000 kr

Tímasetning: 23.-24. apríl 2023, kl. 10:00-16:00, báða daga. Samtals 12 klukkustundir.

Námskeiðsgjald: 

Staðsetning: Reykjadalur í Mosfellsbæ 

 

Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu er farið yfir fræðilegan bakgrunn fyrir íhlutun með aðstoð hunda í starfi með fólki og kynntar þjálfunaraðferðir sem notaðar eru til þess að undirbúa hunda fyrir slíkt starf. Auk þess segir fagfólk sem styðst við hund í starfi frá reynslu sinni. Mestur hluti námskeiðsins er verkleg þjálfun á grunnfærni hundanna til að nýta í starfi innan heilbrigðisstofnana, í félagsþjónustu og í skólum.

Á námskeiðinu verður farið yfir:

  • hugmyndafræðilegan bakgrunn íhlutunar með aðstoð dýra
  • viðurkenndar leiðir við þjálfun hunda sem ætlaðir eru í slíkt starf
  • velferð hunda og öryggi skjólstæðinga
  • verklegar æfingar: motta - höfuð í kjöltu - slökun og sjálfsstjórn - trýni í lófa

 

Fyrir hvern er námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfa innan heilbrigðis-, félags- og menntunarþjónustu og hefur áhuga á að styðjast við hunda í starfi sínu. Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði eru 20 teymi eigenda og hunda. Einnig er boðið upp á nokkur pláss fyrir áhorfendur án hunds.

Hvorki er gerð krafa um þekkingu og færni hunds né eiganda fyrir þátttöku á námskeiði.

 

Umsjón

  • Line Sandstedt, deildastjóri kennslu ICofA, hundaþjálfari, skapgerðarmatsdómari og sérkennari.
  • Gunnhildur Jakobsdóttir, iðjuþjálfi og formaður Hjálparhunda Íslands. Er ásamt hundi sínum vottað teymi frá ICofA.
  • Auður Björnsdóttir, hjálpar- og leiðsöguhundaþjálfari.
  • Valgerður Stefánsdóttir, sérkennari og uppeldis- og menntunarfræðingur. Er ásamt hundi sínum vottað teymi frá ICofA.

 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar

 Námskeiðsgjald með hundi 30.000 kr. (ekki er boðið upp á mat en kaffi og te er innifalið í námskeiðsgjaldi). Skráningarfrestur á námskeiðið er 10. apríl 2023. Forföll/afskráningu þarf að tilkynna skriflega a.m.k. hálfum mánuði fyrir námskeiðsdag eða áður en skráningu lýkur með því að senda tölvupóst á gunnhildur@slf.is

Æfingastöðin áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef tilkynning berst eftir að skráningu á námskeið er lokið.

  

Námskeiðið er fast í formi og gefst ekki tækifæri á einstaklingsþjálfun og/eða ráðgjöf. Hins vegar geta áhugasamir haft samband við Line Sandstedt (line@dyrebaromsorg.no) og bókað einkatíma að loknu námskeiði.

Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Æfingastöðvarinnar, í netfang: gunnhildur@slf.is