Kærleikskúlan 2020 - Finnbogi Pétursson - UPPSELD
Kærleikskúlan 2020 - Finnbogi Pétursson - UPPSELD
Kærleikskúlan 2020 - Finnbogi Pétursson - UPPSELD

Kærleikskúlan 2020 - Finnbogi Pétursson - UPPSELD

Verð 10.900 kr

Kærleikskúla ársins 2020 heitir ÞÖGN og er eftir Finnboga Pétursson.

Kærleikskúlan kemur í takmörkuðu upplagi.

Allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar rennur til sumarbúðanna í Reykjadal.

Kærleikskúlan ÞÖGN hefur að geyma hljóðupptöku á segulbandi. Svona lýsir Finnbogi verkinu: 

Kærleikskúlan geymir augnabliks þögn – eina sekúndu á metra löngu segulbandi. Upptakan er gerð á Arnarstapa sumarið 1986 milli klukkan þrjú og fjögur að nóttu. Þarna hitti ég stundina þegar allt þagnar; fuglarnir, sjórinn, vindurinn, rollurnar – flugurnar. Stundina þegar náttúran endurstillir sig, verður hljóð og nýr dagur rennur upp.
- Finnbogi Pétursson

Finnbogi Pétursson hefur lengi verið í fremstu röð íslenskra listamanna og er brautryðjandi á sínu sviði myndlistarinnar. Hann hefur haldið tugi sýninga um allan heim og var fulltrúi Íslands í Feneyjatvíæringnum árið 2001. Hljóð hefur verið meginefniviðurinn í myndlistinni frá upphafi. Skynjunin er Finnboga hugleikin, hann leikur sér með mörk sjónar og heyrnar og gjarnan svo að hið ósýnilega verður sýnilegt. Í innsetningum hans, oft alltumlykjandi, verða nærstaddir að þátttakendum sem hafa áhrif á verkið á sama tíma og þeir upplifa ljós- og hljóðbylgjur á nýjan hátt.

Finnbogi hefur gefið Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra verkið og því rennur allur ágóði af sölunni til sumarbúðanna í Reykjadal. Þetta er tilvalið tækifæri til að eignast listaverk eftir einn fremsta listamann þjóðarinnar og styrkja gott málefni um leið.

Kærleikskúlan kemur í fallegri gjafaöskju.