Um Reykjadal
reykjadalur
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna. Allur ágóði sölunnar rennur til starfsemi Reykjadals, sumar- og helgardvalar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Mosfellsdal.
Jákvæðni og kærleikur eru einkunnarorð Reykjadals og þar ríkir gleði og fjör. Árlega koma um 300 börn og ungmenni í Reykjadal yfir tímabil sem spannar sumarið og helgardvalir á veturna. Sumarbúðirnar hafa það að leiðarljósi að gefa þeim börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Í Reykjadal er hugmyndafluginu gefinn laus taumurinn og mikið lagt upp úr að gera dvalir gestanna sem eftirminnilegastar.
ATH. AÐ SÖLUTÍMABIL ERU EINGÖNGU 12.-26. OKTÓBER OG 5.-19. DESEMBER





