Um Kærleikskúluna
|
um kærleikskúluna |
||
|
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003 og eru kúlurnar því orðnar níu talsins. Frá upphafi hafa kúlurnar fengið frábærar viðtökur landsmanna enda um að ræða einstakt safn listaverka eftir marga þekktustu listamenn okkar Íslendinga.
TILGANGUR
BLESSUN
ÚTLIT Ár hvert fær Kærleikskúlan nýtt útlit - og er verkið í höndum fremstu listamanna þjóðarinnar. Í grunninn er Kærleikskúlan tær eins og kærleikurinn - með borða í rauðum lit, lit jólanna og kærleikans. Kærleikskúlan er blásin og eru því engar tvær kúlur nákvæmlega eins, en allar fallegar hver á sinn hátt. Kærleikskúlan kemur í kassa og fylgir henni bæklingur. Litir bæklinsins eru svartur og silfraður. Svartur táknar árstímann og silfraður birtuna sem er svo lýsandi fyrir boðskap jólanna.
KÆRLEIKSKÚLAN VEITT VERÐUGUM FYRIRMYNDUM Fyrir hver jól er haldin athöfn í Listasafni Reykjavíkur þar sem kúla ársins er frumsýnd. Biskup Íslands hefur blessað hverja kúlu auk þess að fyrsta kúla hvers árs er veitt verðugri fyrirmynd eða fyrirmyndum úr hópi fatlaðra.
HUGMYNDIN Eva Þengilsdóttir er hugmyndasmiður Kærleikskúlunnar. Hún starfaði hjá Styrktarfélaginu á árunum 2002-2007. Síðan hefur Eva unnið óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu félagsins, verið ráðgefandi við val á listamönnum kúlunnar og veitt ómetanlega aðstoð við kynningu og markaðssetningu kúlunnar hér heima og erlendis.
SAMSTARFSAÐILAR Starfsfólk Áss vinnustofu sem rekin er af Styrktarfélaginu Ási, hefur séð um að setja saman kassana undir kúlurnar, klippa borðana og pakka svo öllu saman. Um margra vikna vinnu er að ræða sem unnin er af einstakri gleði og áhuga. Hvíta húsið, Icelandair Cargo, Pósturinn og Listasafn Reykjavíkur hafa styrkt verkefnið og þannig sýnt áhuga sinn á aukinni velferð fatlaðra barna og ungmenna. Listasafn Reykjavíkur og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar hafa aðstoðað við val á listamönnum. Skjal ehf. hefur gefið alla vinnu við þýðingar texta yfir í enska tungu. Aðrir helstir eru Tónstofa Valgerðar og Þórdís Guðjónsdóttir prófarkalesari.
SÖLUAÐILAR Allir þeir söluaðilar sem selja Kærleikskúluna gera það án þóknunar og leggja því málefninu mikilvægt lið.
Söluaðilar Kærleikskúlunnar eru: Casa, Epal, Hafnarborg, Kokka, Kraum, Listasafn Reykjavíkur, Líf og list, Módern, Þjóðminjasafnið, Blóma- og gjafabúðin, Póley, Norska Húsið, Valrós og Pósturinn. Styrktarfélagið þakkar ofantöldum aðilum ómetanlegan stuðning.
|
||





